Markaðsverkefni um íslenska hestinn
Tilgangur markaðsverkefnisins Horses of Iceland er að byggja upp orðspor íslenska hestsins um heim allan til að leggja grunn að aukinni verðmætasköpun og útbreiðslu hestsins á heimsvísu.
Verkefninu var ýtt úr vör í apríl 2015 með aðkomu helstu samtaka og hagsmunaaðila í greininni, Íslandsstofu og stjórnvalda. Um er að ræða samstarf aðila í hestatengdri starfsemi og samstarfaðilar í Íslandshestamennsku um allan heim eru velkomnir, enda er um alþjóðlegt verkefni að ræða. Þátttakendur í verkefninu eru fyrirtæki, samtök og félög, þ.m.t. FHB, LH og íslenska ríkið. Íslandsstofa sér um framkvæmd verkefnisins.
Allir sem að verkefninu koma taka þátt í að móta áherslur og markaðsaðgerðir og þeir eru kynntir á vefsíðu verkefnisins framlengt
Horses of Iceland leitar nú að nýjum samstarfsaðilum fyrir tímabilið 2022 - 2025.
Berglind Margo Þorvaldsdóttir, verkefnisstjóri hjá Íslandsstofu, veitir jafnframt allar frekari upplýsingar um verkefnið í gegnum tölvupóst, berglind@horsesoficeland.is
Ítarleg samantekt 2016 - 2020
Samantekt af markaðsaðgerðum og árangur 2020
Samantekt af markaðsaðgerðum og árangur 2019
Samantekt af markaðsaðgerðum og árangur 2018
Samantekt af markaðsaðgerðum og árangur 2017